styttist í lok...

jæja núna fer maður að sjá fyrir endann á þessu diplóma námi....úff! mikið verður maður glaður þegar þettta er búið. síðasti kennsludagur er 8 mai og síðustu verkefnaskil um 15 mai. Svo bara útskrifast ég að ég held 30. mai Cool þá er ég orðinn kennari...hahahaha...ótrúlegt ekki satt!

Páskarnir voru mjög ljúfir og rólegir eins og okkur í mávahlíðinni er að vanda, við erum ekki mikið fyrir lætin.....nú hnussa kallinn minn "talaðu fyrir sjálfan þig" því hann greyið elskar að vera á ferðinni og veit ekkert betra en að sitja í bíl og keyra...og keyra...keyra....já við erum frekar ólík við hjónin.  Ég er aldrei eins ánægð og þegar ég er með náttborðsskúffuna mína fulla af bókum til aflestrar eða að horfa á sjónvarpið í náttfötunum upp í sófa með sængina mína og koddann minn...dáaaaásamlegt líf!  Aðalsteinn hins vegar þrífst á því að hafa mörg járn í eldinum og líður helst best ef hann þarf að redda einhverju/leysa vandamál fljótt og vel undir mikilli pressu. Ég meina sko....ég myndi sennilega detta í enn hægari gír og heilinn í mér frís við svona aðstæður ég sé bara hvítt óskrifað blað sem ég get ekki bullað neitt á...sennilega skylt því að geta aldrei sagt neitt sniðugt þegar á þarf að halda heldur sit í bílnum á leiðinni heim með öll flottu commentin rjúkandi úr munninum á mér hált tíma of seint...bahh! hvernig förum við hjónin þá að því að vera sátt ??? 

framhald í næstu færslu...híhíhí...

jæja þessi mánuður er ágætis afmælismánuður Sandran litla hans ´tóta bró á afmæli á morgun og Tóti sjálfur þann 21. apríl, Gummi frændi svo þar á eftir og pabbi minn síðastur ....jebb það er fjör!

lov jú og sí jú

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Hæ sæta. Bara alveg að verða kennari  Það skiptir engu máli hvað þið eruð ólík hjónin, þið eruð yndisleg saman  Til hamingju með alla í fjölskyldunni sem eiga afmæli í mánuðinum elskan. Eigðu fallega helgi Linda mín.

Kærleiksknús til ykkar allara

Kristborg Ingibergsdóttir, 17.4.2009 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda Þorvaldsdóttir
Linda Þorvaldsdóttir

BROS KOSTAR EKKI NEITT  

240 dagar til jóla

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband