ræktin óje!

Ég var í ræktinni í gær og náttúrlega mjög ánægð með mig að vera svona dugleg að mæta...ég byrjaði rosa flott á hlaupabrettinu í spandex-gallanum minum og búin að reyra saman mjaðmirnar með röndótta mjaðmabeltinu (ótrúlega smart). byrjaði að labba rólega og bætti svo smá í og eftir svona 5 mín. labb þá gaf ég aðeins í og rann í hlaupagírinn og...þarna flaug ég um eins og fuglinn frjáls...ekkert gat stoppað mig...áfram Linda!....já já! Happy ....æææ nei þetta er ekki að gerast! Fæ ég ekki einhvern verk í nárann maður og byrja að haltra á brettinu...oh! ekki smart...fuglinn fljúgandi hrapaði með andlitið í gólfið. Jæja það var um að gera að láta ekki bugast svo frúin fór á hjólið og reyndi þar áfram en ekki gekk það nú vel. Okey sleppi bara brennslunni í dag og fer beint í tækin og tek bara vel á því .... þetta gekk mun betur...næsta tæki!...ókey ekki smart að hoppa á einum fæti milli tækja en lét mig nú samt hafa það í tvö önnur. þá eiginlega játaði ég mig sigraða og skellti mér á gólfið og gerði magaæfingar og teygjur og haltraði/hoppaði svo út í bíl, heim og oní sjóðheitt bað.

gengur bara betur næst..  Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Æi dúllan mín, ertu nokkuð að ganga frá þér  

Kristborg Ingibergsdóttir, 24.3.2009 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda Þorvaldsdóttir
Linda Þorvaldsdóttir

BROS KOSTAR EKKI NEITT  

240 dagar til jóla

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband